4.7.2012
Glóðafeykir frá Halakoti
Landsmótssigurvegarinn Glóðafeykir frá Halakoti tekur á móti hryssum í hólfi hér á Hárlaugsstöðum í sumar.
Það var frábært að fylgjast með þeim Einari og Glóðafeyki á LM2012 og án efa góður kostur að kíkja með uppáhaldshryssuna sína til þessa geðgóða rýmishests hingað í sumar.
Glóðafeykir er undan Rökkva frá Hárlaugsstöðum og Glóð frá Grjóteyri en þau eru bæði hátt dæmd klárhross með mikið rými, flott tölt og mikla útgeislun.
Það var frábært að fylgjast með þeim Einari og Glóðafeyki á LM2012 og án efa góður kostur að kíkja með uppáhaldshryssuna sína til þessa geðgóða rýmishests hingað í sumar.
Glóðafeykir er undan Rökkva frá Hárlaugsstöðum og Glóð frá Grjóteyri en þau eru bæði hátt dæmd klárhross með mikið rými, flott tölt og mikla útgeislun.
12.4.2012
Það á ekki af Stálasyninum okkar honum Linda frá Hárlaugsstöðum að ganga en hann er haltur og er trúlega tognaður í hægri axlarlið. Þetta er svekkjandi því hann var að koma skemmtilega til en vonandi jafnar hann sig fljótt og vel. Tökum hann heim núna og dekrum aðeins við hann.
11.4.2012
Frænkurnar Drift og Lísa frá Hárlaugsstöðum voru myndaðar i dag. Það er gaman að sjá framfarirnar hjá þeim, sérstaklega var 4 vetra hryssan Drift flott í dag en hún Lísa hefur nú átt betri dag ;)
11.4.2012
Þetta er hún Mörk frá Hárlaugsstöðum farin að sýna flotta takta hjá Lenu. Mörk er undan Víði frá Prestsbakka og Frón frá Hárlaugsstöðum sem er 1.verðlauna hryssa frá okkur.
27.3.2012
Sóllilja frá Hárlaugsstöðum skellti sér á ísinn í fyrsta skipti og tók þátt í úrtöku fyrir "Þeir Allra Sterkustu". Sýningin hjá Lenu var góð og enduðu þær í 9.sæti af 39 keppendum með einkunnina 6.4. Það leyndi sér kannski ekki í byrjun að Sóllilja hafði ekki komið á ísinn áður en hún sýndi engu síður glæsilega takta þegar á leið. Hér fyrir neðan eru 2 myndir sem Dalli tók og örlítill videobútur.
15.3.2012
Melkorka frá Hárlaugsstöðum og Ópall frá Hárlaugsstöðum eru hjá Ævari og við nýttum góða veðrið í dag og kíktum í heimsókn. Staðan á þeim er bara flott og vonandi gengur þetta klakklaust áfram. Melkorka er flott týpa og spennandi og Aronssonurinn hann Ópall var tekinn til kostanna og sýndi okkur áður óséða takta á skeiði.
12.3.2012
Renndum við í Víðidalinn og kíktum á Mugg frá Hárlaugsstöðum, Víðisson frá Prestsbakka sem er hjá Sigga Matt. Það er ekki annað að sjá en að hann sé óðum að komast í form og lítur vel út.
20.2.2012
Það hefur verið lítið líf hérna á heimasíðunni okkar undanfarið en fjarri því að einhver lognmolla sé yfir búskapnum sem og tamningum og þjálfun. Hérna koma nokkrar myndir frá síðustu heimsókn okkar til hennar Lenu Z en það eru nokkur hross hjá henni. Mörk og Lísa eru komnar aftur til hennar og gengur nokkuð vel með þær og svo er byrjað að temja Stálasoninn hann Linda frá Hárlaugsstöðum sem er á 5 vetur og Drift frá Hárlaugsstöðum sem er á 4 vetur og lofa þau bæði mjög góðu.
1.1.2012
Gleðilegt nýtt ár kæru vinir
26.9.2011
Lísa frá Hárlaugsstöðum er búin að vera í 2 mánuði hjá Lenu Z og gengur vel með hana, fljót að læra og góður vilji. Lísa er síðasta afkvæmi okkar undan Snerru frá Hárlaugsstöðum sem var mikil uppáhaldshryssa hjá okkur og frábært reiðhross, viljug og rúm. Það er ekki laust við að við sjáum takta hjá Lísu sem minna á Snerru gömlu. Ekki skemmir svo liturinn en Lísa er móvindótt og undan Bláskjá frá Kjarri. Það stendur til að taka Lísu aftur eftir áramót og stefna henni í kynbótadóm ef allt gengur upp.
1.9.2011
Elvar Þormarsson og Steinborg
Gleðifréttir ;) Hún Steinborg okkar var sónuð fylfull við Hrímni frá Ósi.
28.7.2011
Mörk frá Hárlaugsstöðum er efnileg hryssa, Lena tók hana fyrir okkur og hún er efni í töffara þessi. Hún fékk smá hvíld og fer væntalega aftur til Lenu í kringum áramótin og ef allt gengur að óskum verður hún svo sýnd í vor. Mörk er undan henni Frón okkar, fyrsta afkvæmi hennar sem er tamið og þetta er allt mjög jákvætt. Faðirinn er svo Víðir frá Prestsbakka en afkvæmi hans hafa verið að koma mjög vel út upp á síðkastið.
30.6.2011
Þau Muggur og Sóllilja frá Hárlaugsstöðum voru bæði sýnd á LM 2011. Muggur í flokki 5v. stóðhesta en hann hlaut 8.20 í aðaleinkunn í Víðidalnum, átti ekki nógu góða spretti á Landsmótinu og hækkaði ekki. Hann er undan Víði frá Prestsbakka.
Sóllilja hlaut 8.13 í aðaleinkunn og dugði það ekki inn á Landsmót í flokki 6v. hryssna en hún kom fram í afkvæmahópi Gára og stóð sig með prýði eins og henni einni er lagið. Við skelltum okkur að sjálfsögðu á Landsmót og skemmtum okkur konunglega.
Sóllilja hlaut 8.13 í aðaleinkunn og dugði það ekki inn á Landsmót í flokki 6v. hryssna en hún kom fram í afkvæmahópi Gára og stóð sig með prýði eins og henni einni er lagið. Við skelltum okkur að sjálfsögðu á Landsmót og skemmtum okkur konunglega.
29.6.2011
Frón frá Hárlaugsstöðum, 1.verðlauna hryssa frá okkur kastaði bleikstjörnóttu merfolaldi undan Tinna frá Kjarri í dag.
Það var byrjað að temja elsta afkvæmi hennar í fyrravetur, hana Mörk frá Hárlaugsstöðum og hún var orðin ansi flott hjá Lenu Z. svo að við erum spennt að sjá hvernig afkvæmi Frónar koma til.
Það var byrjað að temja elsta afkvæmi hennar í fyrravetur, hana Mörk frá Hárlaugsstöðum og hún var orðin ansi flott hjá Lenu Z. svo að við erum spennt að sjá hvernig afkvæmi Frónar koma til.
27.6.2011
Spá og sperrtur Spóasonur. Hvað eru mörg sp í því? :)
1.verðlauna hryssan okkar Spá frá Hrafnkelsstöðum kastaði brúnu hestfolaldi undan Spóa frá Kjarri.
Spói stóð sig vel á LM í sumar og hlaut í kynbótadómi 8.30 í aðaleinkunn. Þar á meðal 9 fyrir skeið, vilja og geðslag og samræmi.
Spói stóð sig vel á LM í sumar og hlaut í kynbótadómi 8.30 í aðaleinkunn. Þar á meðal 9 fyrir skeið, vilja og geðslag og samræmi.
21.6.2011
Hrímnir merkir svæðið
Hrímnir frá Ósi mætti á svæðið í dag og var sleppt í hryssurnar. Það hefur verið mikil aðsókn í að koma með hryssur til hans og er hólfið fullt.
17.6.2011
Það var fjör hjá ömmu og afabörnunum okkar hérna í sumar. Alltaf nóg að gerast og bættust nokkrar landnámshænur í dýrahópinn hérna hjá okkur, unga fólkinu til mikillar gleði.
15.6.2011
Hún Steinborg frá Lækjarbotnum kastaði í dag, fallegur rauðtvístjörnóttur hestur undan
Tinna frá Kjarri. Við höfum mikla trú á henni Steinborgu okkar og hún virðist vera að gefa virkilega skemmtileg afkvæmi, einstaklega gott geðslag og flotta hæfileika. Það verður gaman að fylgjast með þessum fola þroskast og dafna.
Tinna frá Kjarri. Við höfum mikla trú á henni Steinborgu okkar og hún virðist vera að gefa virkilega skemmtileg afkvæmi, einstaklega gott geðslag og flotta hæfileika. Það verður gaman að fylgjast með þessum fola þroskast og dafna.
11.6.2011
Sóllilja frá Hárlaugsstöðum og Lena
Hryssurnar okkar þær Sóllilja og Hekla Björk frá Hárlaugsstöðum tóku báðar þátt í Landsmótsúrtöku Geysis, B-flokki og stóðu sig með mikilli prýði. Lena Z. keppti á Sóllilju í gríðarsterkum hópi þar sem Eldjárn frá Tjaldhólum og Kjarnorka frá Kálfholti enduðu efst en Sóllilja hlaut einkunnina 8.37 og endaði í 11.sæti. Flottur árangur hjá þeim.
Hulda Jónsdóttir keppti í Ungmennaflokki á Heklu Björk og endaði þar í 9.sæti með einkunnina 8.21. Þetta er frábær árangur hjá þeim og kannski sérstaklega í ljósi þess að Hekla Björk hefur aldrei tekið þátt í keppni áður og Sóllilja getur nú ekki talist reynslumikið keppnishross.
Hulda Jónsdóttir keppti í Ungmennaflokki á Heklu Björk og endaði þar í 9.sæti með einkunnina 8.21. Þetta er frábær árangur hjá þeim og kannski sérstaklega í ljósi þess að Hekla Björk hefur aldrei tekið þátt í keppni áður og Sóllilja getur nú ekki talist reynslumikið keppnishross.
10.6.2011
Til Sölu / For Sale
Ópall frá Hárlaugsstöðum hlaut 7.78 í aðaleinkunn á Gaddstaðaflötum. Hann er flottur og mikill töltari undan Aroni frá Strandarhöfði og Sneglu frá Hala og efni í flottan keppnishest. Ópall fékk 8 á línuna fyrir hæfileika fyrir utan skeið og fet sem hann hlaut 6.5 fyrir.
7.6.2011
Gerpla frá Hárlaugsstöðum kastaði háfættu rauðu hestfolaldi undan Tinna frá Kjarri sem er hátt dæmdur gæðingur með 8.42 í aðaleinkunn og er kominn inn á Landsmót 2011. "Tinni litli" er eins og áður sagði háfættur, reistur og flottur foli.
3.6.2011
Hryssurnar Hekla Björk og Melkorka frá Hárlaugsstöðum voru sýndar á Gaddstaðaflötum í dag og erum við þokkalega sátt við útkomuna. Hekla Björk hlaut 7.65 í aðaleinkunn. 7.81 í byggingu og 7.54 fyrir hæfileika. Ekki vildi hún sýna dómurunum skeiðið sem hún á til og þar með var hæfileikaeinkunnin ekki eins góð og vonir stóðu til en annars var hún með 8 og yfir á línuna og leit bara vel út.
Svo var það hún Melkorka sem fékk 7.94 í aðaleinkunn. 7.92 í byggingu og 7.95 í hæfileika. Við erum mjög ánægð með hana og ekki síst vegna þess að fyrir mánuði síðan var hún mjög dauf og kraftlítil og óvíst hvort hún færi í dóm. Vorum ekki viss hvort þetta væru eftirköst hestapestarinnar eða hvað væri að hrjá hana, bæði voru teknar blóðprufur og henni gefið selen og járn til að reyna að hressa hana við.
Jæja, hún dreif allavega í dóm og stóð sig vel í sinni fyrstu sýningu. Var stórglæsileg á hæga töltinu og fékk 9 fyrir það, 8.5 fyrir tölt, stökk, vilja og geðslag, fegurð í reið og hægt stökk. Brokkaði upp á 8 og sýndi smá skeið upp á 6. Þessi hryssa á mikið inni og verður spennandi að fylgjast með henni næsta vetur en við ákváðum að gefa henni frí núna.
Hérna fylgja nokkrar myndir af þeim Heklu Björk og Melkorku, gæðin ekkert sérstök en alveg nógu góð til að njóta.
Svo var það hún Melkorka sem fékk 7.94 í aðaleinkunn. 7.92 í byggingu og 7.95 í hæfileika. Við erum mjög ánægð með hana og ekki síst vegna þess að fyrir mánuði síðan var hún mjög dauf og kraftlítil og óvíst hvort hún færi í dóm. Vorum ekki viss hvort þetta væru eftirköst hestapestarinnar eða hvað væri að hrjá hana, bæði voru teknar blóðprufur og henni gefið selen og járn til að reyna að hressa hana við.
Jæja, hún dreif allavega í dóm og stóð sig vel í sinni fyrstu sýningu. Var stórglæsileg á hæga töltinu og fékk 9 fyrir það, 8.5 fyrir tölt, stökk, vilja og geðslag, fegurð í reið og hægt stökk. Brokkaði upp á 8 og sýndi smá skeið upp á 6. Þessi hryssa á mikið inni og verður spennandi að fylgjast með henni næsta vetur en við ákváðum að gefa henni frí núna.
Hérna fylgja nokkrar myndir af þeim Heklu Björk og Melkorku, gæðin ekkert sérstök en alveg nógu góð til að njóta.
29.5.2011
Hrannar frá Hárlaugsstöðum var á yfirlitssýningunni á Sörlastöðum í dag. Sýningin gekk þokkalega en okkur þóttu dómararnir nú heldur nískir á tölurnar en hann endaði með 7.75 í aðaleinkunn.
Við erum nátturulega alveg hlutlaus í málinu ;), hefðum nú viljað sjá allavega 8.5 fyrir tölt og fegurð í reið auk þess sem hann hefur fengið 8.5 fyrir stökk og fet í fyrri dómum. Það þýðir ekki að deila við dómarann og við skulum leyfa myndunum að tala sínu máli. Hrannar er mikill töffari, það fer ekkert á milli mála.
Við erum nátturulega alveg hlutlaus í málinu ;), hefðum nú viljað sjá allavega 8.5 fyrir tölt og fegurð í reið auk þess sem hann hefur fengið 8.5 fyrir stökk og fet í fyrri dómum. Það þýðir ekki að deila við dómarann og við skulum leyfa myndunum að tala sínu máli. Hrannar er mikill töffari, það fer ekkert á milli mála.
25.5.2011
Kynbótasýningarnar fóru vel af stað hjá okkur en bæði Sóllilja og Muggur fóru í 1.verðlaun í Víðidalnum. Sóllilja hlaut 8.2 fyrir hæfileika, 8.01 í byggingu og 8.13 í aðaleinkunn, hún er í flottu formi og búið að biðja um að hún komi fram á Landsmóti Hestamanna með afkvæmahópi Gára frá Auðsholtshjáleigu. Muggur er einnig kominn inn á Landsmót með jafna og flotta einkunn upp á 8.19 fyrir hæfileika, 8.21 í byggingu 8.20 í aðaleinkunn. Glæsileg frammistaða þetta.
18. 5. 2011
Fyrsta folaldið 2011 er rauðstjörnótt meri undan Stálasyninum okkar honum Linda frá Hárlaugsstöðum og Garúnu frá Hárlaugsstöðum. Litla skinninu heilsast vel þrátt fyrir öskuskotið sem við fengum yfir okkur hérna.
28.4.2011
Við höfum nú ekki verið dugleg að setja inn fréttir upp á síðkastið en ástæðan er nú ekki gúrkutíð, það er alltaf nóg um að vera hér í sveitinni og nú er sauðburðurinn hafinn af fullum krafti. Auður Eir, Dagur og Logi Jarl komu í heimsókn og hjálpuðu til við sauðburðinn. Alltaf gaman að stússast og hjálpa afa sínum með litlu lömbin. Sunna frænka og Rökkvi Freyr sonur hennar kíktu líka við. Látum nokkrar myndir fylgja með.
5.4.2011
Sóllilja frá Hárlaugsstöðum og Mídas frá Kaldbak
Afmælisveisla Orra frá Þúfu var glæsileg og margan gæðinginn að sjá þar. Hemluhestarnir Ómur og Heljar voru frábærir sem og Glíma frá Bakkakoti sem var eftirminnileg. Sóllilja okkar kom einnig fram í afkvæmahópi Gára frá Auðsholtshjáleigu og átti ágætis dag. Hún var fremst í flokki ásamt Mídasi frá Kaldbak og er myndin hér til hliðar af þeim Sóllilju og Mídasi.
24.3.2011
Óðinn Örn var á ferðinni um daginn og stoppaði við á Kirkjubæ þar sem hann skoðaði og myndaði Mugg frá Hárlaugsstöðum. Stendur til að auglýsa folann í Stóðhestablaði Eiðfaxa. Muggur er Víðissonur frá Prestsbakka og er orðinn ansi flottur hjá Hennu og hlökkum við til að sjá hann í næstu heimsókn okkar á Kirkjubæ.
12.3.2011
Við tókum smá rúnt síðastliðinn fimmtudag, heimsóttum Guðmund í Ási og Lenu á Efra-Hvoli. Það var ansi napurt að standa úti með myndavélina en veðrið var fallegt og hrossin líka svo við létum það ekki á okkur fá. Hjá Guðmundi var hún Hekla Björk og leit vel út, við tókum hana svo með okkur austur til Lenu þar sem hún ætlar að vinna aðeins með hryssuna. Lena sýndi okkur svo Ópal sem er óðum að komast í betra form. Því næst var Mörk skoðuð en hún hefur tekið miklum framförum og verður virkilega gaman að sjá hvernig framhaldið verður þar. Og síðast en ekki síst sáum við hana Sóllilju sem er orðin feikna glæsileg og örugg. Látum nokkrar myndir frá heimsókninni rúlla hér að neðan.
1.3.2011
Eins og áður hefur komið fram slasaðist Ævar Örn illa fyrir nokkru og nú eru Muggur frá Hárlaugsstöðum og Melkorka frá Hárlaugsstöðum komin á Kirkjubæ þar sem Henna Johanna Sirén og Elvar Þormarsson ætla að sjá um þjálfun þeirra þangað til að Ævar snýr aftur.
28.2.2011
Nokkrir vaskir menn komu í heimsókn um daginn og í bleytunni var stóðið rekið heim. Hófar klipptir og öllum tryppum gefið ormalyf. Það er jafnan kátt á hjalla þegar góðir vinir hittast og var engin breyting á því í þetta skiptið. Takk fyrir góðan dag.
21.2.2011
Það var aldeilis frábær dagur í gær hjá Signe Bache og Sóllilju frá Hárlaugsstöðum en þær kepptu á Bleika töltmótinu og sigruðu það glæsilega í sínum flokki eftir að hafa verið í 4.sæti í forkeppni. Sóllilja er að komast í hörku form og við óskum Signe til hamingju með sigurinn. Myndirnar af mótinu eru teknar af honum "Dalla".
7.2.2011
Smellti inn myndum af nokkrum sem eru í þjálfun núna. Þetta er nánast copy/paste frá því í fyrra hjá okkur þar sem flensan lagðist á allan hópinn og ekkert varð úr sýningum. Aðeins flæktust málin í síðustu viku þegar hann Ævar Örn slasaðist og þurfum við að finna lausn á því hver tekur við Mugg og Melkorku. Óskum Ævari góðs bata
29.1.2011
Sörli frá Hárlaugsstöðum skellti sér norður í land til hennar Pernille Lyager Møller. Sörli er Rökkvasonur sem hefur lítið sem ekkert verið átt við, er stór og myndarlegur og virkilega geðgóður geldingur. Pernille er á Hólum en hún var hérna hjá okkur á Hárlaugsstöðum fyrir nokkrum árum og verður gaman að sjá hvernig henni gengur með klárinn.
GLEÐILEGT NÝTT ÁR
Við þökkum öllum vinum og vandamönnum fyrir árið 2010 sem brátt tekur enda og hlökkum til að hitta ykkur öll hress og kát á nýju og spennandi ári. Við erum búin að taka nokkra gæðinga á hús sem stefnt er með í þjálfun og aðrir eru nú þegar komnir af stað og munu fréttirnar vonandi byrja að streyma hér inn á síðuna á nýju ári.
We wish all our friends and family a happy new year and look forward to see you in 2011. We have a few good horses in training already and others are waiting and ready to go. Hopefully good news and pretty photos will start streaming here on our website as the new year begins.
Kveðja Guðmundur og Silla
We wish all our friends and family a happy new year and look forward to see you in 2011. We have a few good horses in training already and others are waiting and ready to go. Hopefully good news and pretty photos will start streaming here on our website as the new year begins.
Kveðja Guðmundur og Silla
27.11.2010
Eins og áður hefur komið fram hérna á síðunni var Stálasonurinn okkar, hann Lindi bitinn illa rétt ofan við hækil í haust. Nú eftir miklar myndatökur hjá Hellulæknum, Súsí dýralækni og sérfræðiálits þýsks spekings er komin niðurstaða um að lítið bein við hné hafi færst úr stað. Þetta muni tíminn lækna og er boðið upp á 6 mánaða hvíld. Sjúkdómsgreiningin var léttir, því við vorum farin að hafa áhyggjur af því að skaðinn væri varanlegur. Vonandi fer þetta allt á besta veg svo hægt verði að byrja að temja klárinn næsta haust en Lindi hefur þroskast mikið og sýnir glæsilegar hreyfingar auk þess að hafa einstaklega gott geðslag.
25.11.2010
Dagrún frá Hárlaugsstöðum er sú moldótta
Við kíktum á hrossin niðri í Sauðholti og litu þau mjög vel út, helst litum við til með ungu tryppunum og folaldshryssunum og voru þau hraustleg og hvorki hor né hósta að sjá hjá neinu þeirra. Tíðin hefur verið afburðagóð og enn er kafagras í Sauðholtinu þrátt fyrir að desember sé á næsta leyti.
22.11.2010
Mörk frá Hárlaugsstöðum. F: Víðir frá Prestsbakka
Mörk frá Hárlaugsstöðum fór aftur til Lenu Z. í dag. Hún var hjá henni um daginn í prufu og sýndi skemmtilega takta en var leiðinleg í beisli og þoldi greinilega illa um leið og eitthvað átti að krefja hana. Við fórum með hana til hennar Kötu í Litlu-Tungu og þar voru tannlæknagræjurnar aldeilis brúkaðar. Það var ljóst að merin hafði fundið til og þurfti að raspa þónokkuð og framtennur jafnaðar ásamt því að úlfstönn var fjarlægð. Eftir 3 vikur í dekri hérna heima við er hún komin aftur til Lenu og vonandi var þetta það sem til þurfti svo betra taumsamband náist við merina.
10.11.2010
Við keyptum forláta hrút hjá honum Palla á Fossi um daginn, gripurinn hlaut nafnið Frakki og er hyrndur, svartkápóttur og sokkóttur og er sæðingalamb undan honum Sokka. Hópurinn er orðinn ansi litfagur hjá okkur og vonandi á hann eftir að bæta enn frekar í flóruna. Svo fær ein mynd af fallegu sólsetri í Breiðafirðinum að fylgja með.
25.10.2010
Ljósbrá frá Hárlaugsstöðum F: Bláskjár frá Kjarri
Nú erum við í óða önn að skipuleggja veturinn framundan hjá okkur. Það er að mörgu að huga varðandi tamningar og þjálfun og hin ýmsu störf hérna heima fyrir. Elli og Óðinn Gabríel eru í heimsókn hjá okkur og við skruppum upp að Holtsmúla til Magnúsar og Svanhildar með tvær fjögurra vetra merar í frumtamningu, Bláskjásdæturnar Ljósbrá og Limru.
Á myndinni hér til hliðar er Ljósbrá.
Á myndinni hér til hliðar er Ljósbrá.
24.10.2010
Gæðingurinn Hrímnir frá Ósi, undan
Rökkva frá Hárlaugsstöðum og Hélu frá Ósi, verður hér á Hárlaugsstöðum eftir Landsmót 2011. Hann þykir gefa myndarleg afkvæmi og hreyfingafalleg.
Þau hafa mikinn og yfirleitt vel settan háls, mikinn prúðleika og eru skrefafalleg, mjúk og hágeng og sýna flest allan gang.
Hrímnir er flugviljugur hestur með skemmtilegt og ljúft geðslag. Hann er eðlishágengur með mikið fas og rými. Góðar og hreinar gangtegundir. Hann fór í flott 1. verðlaun fjögurra vetra gamall og hlaut glæsilegan dóm í sumar þrátt fyrir að hafa verið frá þjálfun í meira en mánuð vegna veikinnar alræmdu. Hrímnir fékk meðal annars 9,5 fyrir tölt & brokk, 9 fyrir stökk, fegurð í reið og vilja & geð.
Fyrir sköpulag hlaut Hrímnir 8.08, fyrir hæfileika 8.49 og í aðaleinkunn 8.32
Hér fyrir neðan er hægt að smella á 2 þræði og berja Hrímni augum; á öðru myndbandinu er hann fjögurra vetra á hringvelli og á hinu í leik með afkvæmi sínu.
http://www.youtube.com/watch?v=GSCjsiSgtdU
http://www.youtube.com/watch?v=JykZwtQc8K0
Rökkva frá Hárlaugsstöðum og Hélu frá Ósi, verður hér á Hárlaugsstöðum eftir Landsmót 2011. Hann þykir gefa myndarleg afkvæmi og hreyfingafalleg.
Þau hafa mikinn og yfirleitt vel settan háls, mikinn prúðleika og eru skrefafalleg, mjúk og hágeng og sýna flest allan gang.
Hrímnir er flugviljugur hestur með skemmtilegt og ljúft geðslag. Hann er eðlishágengur með mikið fas og rými. Góðar og hreinar gangtegundir. Hann fór í flott 1. verðlaun fjögurra vetra gamall og hlaut glæsilegan dóm í sumar þrátt fyrir að hafa verið frá þjálfun í meira en mánuð vegna veikinnar alræmdu. Hrímnir fékk meðal annars 9,5 fyrir tölt & brokk, 9 fyrir stökk, fegurð í reið og vilja & geð.
Fyrir sköpulag hlaut Hrímnir 8.08, fyrir hæfileika 8.49 og í aðaleinkunn 8.32
Hér fyrir neðan er hægt að smella á 2 þræði og berja Hrímni augum; á öðru myndbandinu er hann fjögurra vetra á hringvelli og á hinu í leik með afkvæmi sínu.
http://www.youtube.com/watch?v=GSCjsiSgtdU
http://www.youtube.com/watch?v=JykZwtQc8K0
13.10.2010
Lindi frá Hárlaugsstöðum er ennþá á sjúkradeildinni hérna heima við hús hjá okkur og virðist óðum að ná sér. Hann er óhaltur en þó finnst okkur hann hlífa sér örlítið á afturfæti og ekki ganga eðlilega. Látum dýralækni kíkja á folann hið fyrsta. Kórall er veturgamall foli undan Ópal frá Hárlaugsstöðum og Gerplu frá Hárlaugsstöðum og hann fylgir Linda hvert fótmál. Við teymdum þá félaga upp í gerði og Kórall hélt fyrir okkur smá sýningu, verulega montinn, sperrtur og flottar hreyfingar. Verður gaman að sjá hvernig hann þroskast. Hérna fyrir neðan eru nokkrar myndir af Kóral, einnig af Steinborgu og Lokasyni í bleytunni hérna um daginn
13.10.2010
Sóllilja frá Hárlaugsstöðum F: Gári frá Auðsholtshjáleigu
Það er komið stutt myndband af Sóllilju frá Hárlaugsstöðum undir liðnum Vídeo hérna á síðunni. Við stefnum svo á að smella inn nokkrum til viðbótar við tækifæri.
25.9.2010
Við brugðum undir okkur betri fætinum um helgina og skruppum norður í Laufskálaréttir. Elli og Óðinn Gabríel komu með ásamt Grétari og Stínu í Selinu. Þarna var margt um manninn og mikill fjöldi hrossa og rákumst við á nokkra hressa Áshreppinga á sveimi. Litli pjakkurinn hann Óðinn Gabríel hafði mjög gaman af öllu umstanginu, fagnaði ákaft þegar hrossin voru rekin í réttina og dundaði sér við steinatínslu. Svo nýttum við ferðina til hins ítrasta og kíktum í heimsókn til ættingja okkar á Sauðárkróki.
9.9.2010
Lindi og Kórall frá Hárlaugsstöðum
Til stóð að fara með Stálasoninn okkar
Linda frá Hárlaugsstöðum í tamningu til Magnúsar Lárussonar í vikunni. Því miður slasaðist Lindi á fæti, hann var bitinn illa og er því í dekri þessa dagana hérna heima við. Samkvæmt dýralækni eru batalíkur góðar, hann vildi meina að ekkert hefði skaddast varanlega og þetta ætti að jafna sig á tiltölulega stuttum tíma. Við fylgjumst vel með folanum og vonum það besta.
Linda frá Hárlaugsstöðum í tamningu til Magnúsar Lárussonar í vikunni. Því miður slasaðist Lindi á fæti, hann var bitinn illa og er því í dekri þessa dagana hérna heima við. Samkvæmt dýralækni eru batalíkur góðar, hann vildi meina að ekkert hefði skaddast varanlega og þetta ætti að jafna sig á tiltölulega stuttum tíma. Við fylgjumst vel með folanum og vonum það besta.
8.9.2010
Hekla Björk frá Hárlaugsstöðum F: Þyrnir frá Þóroddsstöðum
Hekla Björk frá Hárlaugsstöðum fer til Lenu Z. um eða eftir helgi. Það skal aldeilis taka hana til kostanna og sjá svo til hvert stefnan verður tekin en Hekla Björk er falleg meri undan Þyrni frá Þóroddsstöðum og Sneglu frá Hala
1.9.2010
Mörk frá Hárlaugsstöðum
Um helgina förum við með Mörk frá Hárlaugsstöðum til Lenu Zielinski og ætlar hún að prufa gripinn í mánuð eða tvo. Í framhaldi af því verður tekin ákvörðun um næstu skref. Mörk er rennileg hryssa á 5.vetur með mjúkar og skemmtilegar hreyfingar. Hún er undan Víði frá Prestsbakka og Frón frá Hárlaugsstöðum sem er 1.verðlauna hryssa úr okkar ræktun.
1.9.2010
Spá frá Hrafnkelsstöðum F: Svartur frá Unalæk
Í dag fengum við staðfest að Spá frá Hrafnkelsstöðum er fylfull við Spóa frá Kjarri. Þetta eru gleðifréttir þar sem hún fyljaðist ekki í fyrra og er búið að reyna ítrekað að koma í hana fyli frá fyrsta húsmáli í vor.
31.08.2010
Björk frá Sólheimum F: Rökkvi frá Hárlaugsstöðum
Rökkvadóttirin Björk frá Sólheimum fór í 1.verðlaun á síðsumarsýningunni á Gaddstaðaflötum en eigandi hennar er stórvinur okkar hann Ketill Björnsson og óskum við honum innilega til hamingju með merina. Björk er lagleg alhliða hryssa sem hlaut 8.01 fyrir sköpulag, 8.03 fyrir hæfileika og 8.02 í aðaleinkunn.
19.8.2010
Ekki tókst Sóllilju frá Hárlaugsstöðum að komast í fyrstu verðlaun í dag. Það munaði þó ansi litlu en hún endaði með 7.96 í aðaleinkunn. Hún hækkaði í brokki en lækkaði í skeiði síðan á Miðsumarsýningunni á Gaddstaðaflötum þar sem hún hlaut 7.99 fyrir hæfileika og 7.97 í aðaleinkunn. Töltið var glæsilegt og fékk hún 8.5 fyrir það og við vorum að vonast eftir 9 þar en það gekk því miður ekki eftir í þetta skiptið.
30.7.2010
Loksins loksins kastaði hún Frón hjá okkur. Þetta er brún meri undan Fláka frá Blesastöðum og náðum við nokkrum myndum af henni núna áðan. Bæti þeim inn undir "Folöld 2010"
17.6.2010
Gleðilegan þjóðhátíðardag kæru vinir. Hérna er allt í blóma og gaman að fylgjast með folöldunum dafna og þeytast um hagann. Nú höfum við bætt við fleiri myndum í "Folöld 2010" Myndin hér til hliðar er af Steinborgar og Lokasyni sem heillar okkur mjög þessa dagana. Sperrtur og flottur.
15.6.2010
Gerpla kastaði í nótt rauðskjóttri meri undan Ópal frá Hárlaugsstöðum. Hún Gerpla er nú ekki mikið fyrir myndavélina svona nýköstuð en við náðum þó einni ágætri mynd og virðast merarnar koma með lit og kyn eftir pöntun þessa dagana en þarna var búið að leggja inn fyrir rauðskjóttri meri og sú varð raunin ;) Fleiri myndir eru í "Fölöld 2010" og bætti ég við nýjum myndum af Steinborgu og hennar 12 daga gamla Lokasyni frá Selfossi en hann er ansi hreint glæsilegur.
11.6.2010
Þyrilsdóttirin hún Garún kastaði gullfallegu bleikskjóttu folaldi í girðingunni hjá honum Linda í gær. Það var búið að panta bleikskjótta meri og að sjálfsögðu varð Garún við þeirri ósk, enda mikill öðlingur og góð meri. Fleiri myndir eru í "Folöld 2010"
11.6.2010
Þá er það ljóst að alhliða gæðingurinn Tinni frá Kjarri verður í hólfi hér á Hárlaugsstöðum í sumar. Tinni hlaut 8.13 fyrir sköpulag, 8.54 fyrir hæfileika og 8.38 í aðaleinkunn en hann er sammæðra Stála frá Kjarri, undan gæðingamóðurinni Jónínu frá Hala og Sjóla frá Dalbæ. Það sem einkennir Tinna eru frábærar gangtegundir, léttleiki og traust lund. Hann er einstaklega yfirvegaður, taugasterkur og geðgóður ásamt því að vera með mjög heilsteypt alhliða ganglag. Nánari upplýsingar veitir Guðmundur í síma 487-5084 eða 895-2084
8.6.2010
Stórglæsilegar tölur hjá Rökkvasyni.
Rökkvasonurinn Hrímnir frá Ósi náði frábærum tölum á Héraðssýningu á Vesturlandi í dag. Hrímnir hlaut 8.08 fyrir sköpulag og 8.49 fyrir hæfileika. Aðaleinkunn var 8.32.
Hrímnir fór í flott 1.verðlaun 4 vetra gamall og núna 5 vetra gamall hlýtur hann 9.5 fyrir tölt og brokk og 9 fyrir stökk, vilja-geðslag og fegurð í reið sem hlýtur að teljast glæsilegur árangur. Það er gaman að bera þessar tölur saman við einkunn Rökkva frá Hárlaugsstöðum sem fékk 8.48 fyrir hæfileika og 8.34 í aðaleinkunn en Hrímnir er þarna kominn ansi nálægt einkunn föður síns :)
Rökkvasonurinn Hrímnir frá Ósi náði frábærum tölum á Héraðssýningu á Vesturlandi í dag. Hrímnir hlaut 8.08 fyrir sköpulag og 8.49 fyrir hæfileika. Aðaleinkunn var 8.32.
Hrímnir fór í flott 1.verðlaun 4 vetra gamall og núna 5 vetra gamall hlýtur hann 9.5 fyrir tölt og brokk og 9 fyrir stökk, vilja-geðslag og fegurð í reið sem hlýtur að teljast glæsilegur árangur. Það er gaman að bera þessar tölur saman við einkunn Rökkva frá Hárlaugsstöðum sem fékk 8.48 fyrir hæfileika og 8.34 í aðaleinkunn en Hrímnir er þarna kominn ansi nálægt einkunn föður síns :)
7.6.2010
Muggur frá Hárlaugsstöðum F: Víðir frá Prestsbakka
Þrátt fyrir stutt fréttastopp hérna á síðunni hjá okkur hefur síður en svo verið lognmolla á Hárlaugsstöðum. Aska lagðist hér yfir og flensan skæða hefur herjað á okkar hross og eru öll þau hross sem stefnt var með í sýningar komin hingað heim í hvíld nema Sóllilja sem Lena Z. bindur vonir við að nái sér og ætlar að sjá til hvernig málin þróast með hana. Annars er nefrennsli hjá flestum hrossunum hvort sem um er að ræða unghross uppi í haga eða folaldsmerarnar í neðra hólfi. Stóðhestarnir Hrannar, Ópall, Muggurog Lindieru því allir á svæðinu og skipta hólfum Hárlaugsstaða bróðurlega á milli sín þessa dagana. Líklega munum við halda okkar merum undir heimahesta þetta árið vegna flensunnar, viljum helst hafa merarnar sem næst okkur til að geta fylgst sem allra best með gangi mála. Hérna á myndinni er Muggur frá Hárlaugsstöðum að sperra sig fyrir vélina.
3.6.2010
Það hlaut að koma að því, nú hefur hún Steinborg okkar kastað fallegum móálóttum hesti undan Loka frá Selfossi. Hann er verulega sperrtur og sprækur og gaman að fylgjast með honum hendast hérna um hagann. Við bættum inn síðu sem heitir "Folöld 2010" og setjum myndir þar inn af folöldunum okkar þetta árið. Annars eru 5 merar kastaðar frá okkur og 9 allt í allt hérna í haganum.
20.05.2010
Jæja jæja þá er fyrsta folaldið komið hjá okkur og var það Galsadóttirin hún Galsa sem kastaði því. Þetta er fallega bleikt merfolald undan honum Muggi frá Hárlaugsstöðum. Hundurinn okkar hann Askur fylgist spenntur með og sýnir þessum málum mikinn áhuga. Það eru einnig komnar 2-3 myndir af folaldinu í myndasafnið okkar. Við frostmerktum tryppin okkar í gær og þar var ein merin hóstandi og með grænan horviðbjóð þrátt fyrir að hafa verið úti við og ekki brúkuð lengi.
19.05.2010
Nú þegar hrossapestin geysar um allt land er ósköp dauft yfir hestamönnum. Við verðum þó að hemja okkur og muna að hafa hag hrossanna alltaf í efst í huga. Hérna á Hárlaugsstöðum er nóg um að vera því sauðburður er einnig í fullum gangi og alltaf mikið líf og fjör í kringum hann. Litlu börnin og ekki síður fullorðna fólkið hafa gaman af lömbunum og smellum við inn nokkrum myndum af barnabörnunum okkar, Óðni Gabríel og Nótt og henni Elfu Maríu tengdadóttur að kjassa lömbin :)
17.05.2010
Enn bætist í hóp 1.verðlauna afkvæma hans Rökkva frá Hárlaugsstöðum en merin Lýdía von Birkenlund DE2005284349 fór í 1.verðlaun á kynbótasýningu í Þýskalandi um helgina. Hlaut hún 7.94 fyrir sköpulag og 8.20 fyrir hæfileika. Aðaleinkunn 8.10, glæsilegur árangur það.
17.05.2010
Jákvæðar fréttir, við heyrðum í henni Lenu Z. í gær og sagði hún að Sóllilja frá Hárlaugsstöðum væri að koma til og ætlaði hún að gera tilraun með að lónsera hana aðeins til að byrja með. Ekki var Ópall frá Hárlaugsstöðum orðinn nógu sprækur hjá henni til að hreyfa og höfum við ekki heyrt jákvæðar fréttir frá öðrum tamningarmönnum okkar heldur. En við erum bjartsýn og vonum að þessu fari nú að linna og að blessuð hrossin jafni sig sem fyrst.
15.05.2010
Jæja þá er komin gestabók inn á síðuna hjá okkur, gaman væri að sjá kveðjur frá ykkur sem kíkið hérna við.
14.05.2010
Búið er að velja fyrsta stóðhest sumarsins. Við ákváðum að halda henni Spá undir 1.verðlauna stóðhestinn Bláskjá frá Kjarri og er hún farin til hans Helga á Kjarri. Stálasonurinn Bláskjár var í hólfi hérna hjá okkur fyrir nokkrum árum síðan og gaf okkur falleg tryppi og skemmtilega litasamsetningu.
14.05.2010
Það var örlítið öskufall hjá okkur í morgun en ekki það mikið að við teljum þörf á frekari aðgerðum. Vonandi fer nú þessu blessaða eldgosi að ljúka Annars höfum við bætt þónokkrum myndum inn á myndasíðuna hjá okkur og eru fleiri uppfærslur í vændum svo þið fylgist bara vel með ;)
10.05.2010
Í gær skildum við fylfullu merarnar frá tryppunum og settum þær niður í hólf þar sem þær geta verið í ró og næði fram að köstun. Snyrtum hófa þar sem þörf var á bæði hjá ungum sem öldnum. Tryppin voru svo keyrð niður í Sauðholt þar sem þau geta verið ef að Eyjafjallajökull lofar og ekki fer að bera á öskufalli.
Annars er útlitið ekki bjart með þau hross sem stefnt var með í kynbótadóm, flest virðast þau komin með flensuna og verða ekki hreyfð fyrr en útséð er að þau hafi náð sér að fullu. Ansi svekkjandi þar sem í það minnsta 2 þeirra voru komin í feikigott form og stóð til að sýna í Víðidal. Nú verður bara að bíða og sjá hvað setur og gera það besta úr stöðunni.
20.04.2010
Skruppum heim að Efra-Hvoli til hennar Lenu Z. að skoða Sóllilju og Ópal í dag. Það er alltaf gaman að koma þangað og Lena var hress og kát, sauðburðurinn kominn í gang og nóg að gera í hesthúsinu. Gáradóttirin hún Sóllilja er komin í feikna fínt form og var glæsileg og Ópall, Aronssonurinn var góður, sýndi flotta takta en er styttra kominn en merin og ekki orðinn jafn öruggur.
Myndin hérna til hliðar er af honum Ópal
19.04.2010
Þá höfum við búið okkur undir verja hrossin fyrir öskufalli. Búið að gera húsin klár fyrir hesta og kindur. Færðum stóðhestana heim undir hús svo hægt sé að kippa þeim strax inn. Fylfullu merarnar og tryppin eru svo komin í hólfið sem liggur beinast við að reka beint inn í hús. Vonandi kemur ekki til þess að við þurfum að grípa til frekari ráðstafana.
13.04.2010
Núna eru spennandi tímar framundan. Styttist í að merarnar okkar fari að kasta og tilhlökkunin orðin mikil, hvað fáum við þetta árið? Merar, hesta, rautt, jarpt, skjótt?.... Svo er það hið árlega "lúxusvandamál", undir hvaða hesta skal halda þetta árið.
Nú er Landsmótsár og allir orðnir spenntir fyrir því og erum við með nokkur hross í tamningu þessa dagana.
Hjá Ævari Erni eru Melkorka frá Hárlaugsstöðum, 4.vetra Rökkvadóttir undan henni Steinborgu okkar, Melkorka lofar verulega góðu og bindum við miklar vonir við hana. Glæsileg meri. Myndin hér að ofan er af henni og fleiri að finna inni á myndasafninu hér á síðunni.
Muggur frá Hárlaugsstöðum er 4.vetra undan Víði frá Prestbakka og Gerplu frá Hárlaugsstöðum. Hann er opinn og skemmtilegur og spennandi að sjá hvernig hann vinnst næstu mánuði. Myndir af Mugg eru inni á myndasafninu okkar á síðunni.
Ef allt gengur að óskum sýnir Ævar þessi tvö í sumar.
Hjá henni Lenu er Ópall frá Hárlaugsstöðum, 5v. undan Sneglu og Aroni á góðu skriði en það var lítið unnið með hann á 4.vetur og honum leyft að þroskast. Nokkrar myndir af Ópal eru í myndasafninu.
Á sama stað er Sóllilja frá Hárlaugsstöðum í þjálfun en hún er undan Sneglu heitinni og Gára frá Auðsholtshjáleigu. Þar er gæðameri á ferð sem sýnd var í fyrra í miklu slagveðri og fékk ágætisdóm eftir stutta þjálfun. Við teljum hana hins vegar eiga mikið inni. Myndir í myndasafni.
Ekki má gleyma Rökkva og Gerplusyninum honum Hrannari frá Hárlaugsstöðum sem er nú í tamningu hjá Sigga Matt og er ansi spennandi að sjá hver útkoman verður þar. Myndirnar inni á myndasafninu tala sínu máli!
Velkomin á heimasíðuna okkar
Endilega hafið samband við okkur ef þið hafið einhverjar spurningar.
Guðmundur og Silla
Hárlaugsstöðum
487-5084 / 895-2084
[email protected]
[email protected]
Guðmundur og Silla
Hárlaugsstöðum
487-5084 / 895-2084
[email protected]
[email protected]