30. júlí 2010
Eftir langa bið kastaði Frón merfolaldi undan Fláka frá Blesastöðum. Þetta er líflegt folald og lofar góðu.
15.júní 2010
Gerpla frá Hárlaugsstöðum kastaði í nótt rauðskjóttri meri undan Ópal frá Hárlaugsstöðum. Við náum nú fleiri myndum á næstu dögum en hún Gerpla er ekki mikið fyrir sviðsljósið svona nýköstuð.
10.júní 2010
Garún frá Hárlaugsstöðum kastaði fallegri bleikskjóttri meri undan Hrannari frá Hárlaugsstöðum í dag. Garún er undan Páfasyninum Þyrli frá Hárlaugsstöðum og er falleg og virkilega geðgóð meri.
3.júní 2010
Steinborg kastaði glæsilegum móálóttum hesti undan Loka frá Selfossi. Líklega verður folinn nú brúnn en það er verulega gaman að fylgjast með honum þeytast hérna um rígsperrtum á milli þess sem hann kom alveg til okkar og leyfði okkur að klappa sér og kjassa.
20. maí 2010
Hún Galsa reið á vaðið og kastaði fallegu bleiku merfolaldi undan Muggi frá Hárlaugsstöðum. Heimilishundurinn hann Askur fylgist spenntur með og sýnir þessu mikinn áhuga.