Hrannar frá Hárlaugsstöðum
Hrannar er undan Rökkva frá Hárlaugsstöðum og Gerplu frá Hárlaugsstöðum. Hann er í tamningu hjá honum
Sigurði V. Matthíassyni og er orðinn ansi hreint vígalegur. Svífur um á brokki og vígatölti, gríðarlega mjúkur og rúmur.
Sigurði V. Matthíassyni og er orðinn ansi hreint vígalegur. Svífur um á brokki og vígatölti, gríðarlega mjúkur og rúmur.
Sóllilja frá Hárlaugsstöðum
Sóllilja er á 6.vetri undan Gára frá Auðsholtshjáleigu og Sneglu frá Hala. Hún er í þjálfun hjá Lenu Zielinski og er orðin meiriháttar glæsileg hjá henni.
Ópall frá Hárlaugsstöðum
Ópall er 5 vetra undan Aroni frá Strandarhöfði og Sneglu frá Hala. Lena Z. er með hann í þjálfun og er hann að koma vel í ljós þar sem lítið sem ekkert var átt við hann 4 vetra gamlan.
Melkorka frá Hárlaugsstöðum
Melkorka er á 4.vetur undan Rökkva frá Hárlaugsstöðum og Steinborgu okkar og er í tamningu hjá Ævari Erni. Þetta er gríðarlega efnileg meri, "óslípaður demantur" sagði ónefndur tamningamaður! Spennandi að sjá hvernig hún mun slípast til :)
Muggur frá Hárlaugsstöðum
Muggur er 4 vetra undan Víði frá Prestsbakka og Gerplu frá Hárlaugsstöðum. Ævar Örn er að temja hann og er hann opinn og skemmtilegur foli. Flott yfirlína og holning á þessum hesti.
Lindi frá Hárlaugsstöðum
Lindi litli er 3 vetra undan Stála frá Kjarri og Steinborgu okkar. Hann tók þennan líka fína sprett fyrir okkur í bleytunni um daginn og sýndi við hverju má búast næsta vetur frá honum ;)