Rökkvi frá Hárlaugsstöðum IS1997186541
F: Otur frá Sauðárkróki
Ff: Hervar frá Sauðárkróki
Fm: Hrafnkatla frá Sauðárkróki
M: Snegla frá Hala
Mf: Þokki frá Hala
Mm: Ferju-Jörp frá Sandhólaferju
Kynbótamat: 116
Rökkva þarf vart að kynna fyrir hestamönnum. Hann var í fremstu röð stóðhesta og keppnishesta hér á Íslandi og hefur heillað margan hestamanninn með glæsileika og útgeislun sinni. Rökkvi var ljúfur í allri umgengni og glæsilegur sem ungfoli og heillaði okkur fljótt upp úr skónum. Helgi Eggertsson á Kjarri frumtamdi Rökkva en hann þekkti einnig vel til móður hans og sá fljótt hvað bjó í hestinum. Flugviljugur og gríðarlega eðlisrúmur á gangi. "Ég frumtamdi Rökkva frá Hárlaugsstöðum og hef varla tamið skemmtilegra trippi, hann er snillingur sá hestur" var haft eftir Helga er hann ræddi við Jens Einarsson fyrir heimasíðuna www.seisei.is.
Þorvaldur Árni hefur síðan þjálfað Rökkva síðustu ár og útkoman hefur verið aldeilis glæsileg.
Meðal titla sem hann hefur hlotið eru eftirfarandi auk fjölda annara verðlauna.
Sigurvegari í B-flokki a LM 2004
Sigurvegari í B-flokki á MEST gæðingamóti Fáks í Reykjavík 2006
Reykjavíkurmeistari í tölti 2007
Íslandsmeistari í tölti í Reykjavík 2008
Rökkvi sækir mjög í sig veðrið sem kynbótahestur og er aðeins hársbreidd frá því að komast í heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. 17 afkvæmi hafa hlotið 1.verðlaun og 13 afkvæmi einkunn á bilinu 7.80-8.00
Hann virðist gefa skrefstærð, mýkt og vilja, kosti sem hann hefur í svo ríkum mæli sjálfur.
Rökkvi var seldur þeim Göran og Vivecu Montan og fluttur út til Svíþjóðar árið 2008
Sköpulag:
Höfuð 7.5 Háls/herðar/bógar 8.5 Bak og lend 8.5 Samræmi 8.5 Fótagerð 7 Réttleiki 8 Hófar 8.5 Prúðleiki 7.5
Sköpulag 8.13
Kostir:
Tölt 9 Brokk 9.5 Skeið 5 Stökk 9 Vilji og geðslag 9 Fegurð í reið 9.5 Fet 6.5 Hæfileikar 8.48
Hægt tölt 9 Hægt stökk 8.5
Aðaleinkunn 8.34